Ég rakst á þessa bráðskemmtilegu og upplífgandi myndasyrpu á vafri mínu um alnetið í kvöld. Varð að deila þessu hér.
Illskan og hætturnar leynast ALLSTAÐAR. Vondi karlinn er í lauknum, bakpokanum, inniskónum og poppinu. Ekki sýna barninu þínu þessar myndir! 😀
1. Þetta tré er bæði illa innrætt og með sömu greindarvísitölu og hamstur á hassi. Ég myndi passa mig.
2. Hryllingstætari sem myndi tæta þig líka.
3. Eigum við að poppa? Nei. Aldrei aftur. Aldrei.
4. Barnið harðneitaði að fara aftur í úlpuna. Af hverju?
5. Þessi stingur þig í bakið.
6. Fólk sem er hrætt við trúða ætti alls ekki að fara nálægt þessu húsi.
7. Þetta laufblað er dáið. Það er alveg á hreinu.
8. Agg gagg aggg agg agg…
9. Ha?
10. Þessir eru margir. Og þeir eru á eftir þér!
11. Það held ég að margur goth-garmurinn myndi fagna því að fá þessar rós. Dauða rós.
12. Óöruggt öryggisbelti sem er líka fáviti.
13. Þunglynt og fúlt kakómalt.
14. Þunglynd og fúl smákaka.
15. Vondur kaggi sem vill ééééta þig.
16. Flísteppi dauðans.
17. Geimverupasta…
18. Þessi kartafla er mjög sakleysisleg miðað við allt hitt. Jafnve bara vinaleg.
19. Nei! Farðu!
20. Þetta grill er líka orðið pirrað á snjónum.
21. Vonda, vonda spæleggið. Vonda spæleggið frá helvíti.
22. Vonda tefroðan. Vonda tefroðan sem hlær að þér.
23. Ninja laufblað dauðans.
24. Súr gúrka, í orðsins fyllstu merkingu.
25. Þessi gæti verið starfsmaður hjá Prúðuleikurunum. Frændi fréttaarnarins.
26. Grísk jógúrt með smá jarðarberjadauða. Mmmm…
27. Barn með satanískan lauk.
28. Já!
29. Þessir kassar plana að pakka þér saman.
30. Inniskór Djöfulsins.
31. Gott að þetta er ekki næsta hús. 32. Láttu mig í friði, vonda paprika!!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.