Hvað eiga einhyrningar við regnbogasólarlag sameiginlegt með risaeðlum í slag, manninum með ljáinn, Manimals og kettlingum með sólgleraugu?
Jú, þetta eru allt myndir á bolum sem fást í vefversluninni 313 en sú sérhæfir sig í að selja ævintýralega konsept boli.
Verslunin er ákaflega skemmtileg, en þar fara saman útlitshönnun búðarinnar og varningurinn sem þar er seldur ásamt allri framsetningu, textagerð og vöruúrvali.
Bolirnir kosta frá 2000 krónum og úrvalið er hreinlega magnað en það eru næstum óteljandi hugmyndir þarna.
Bolur með uppvakningum? Já, eigum hann. Bolur með hákörlum? Já, eigum hann. Bolur með rastafarai hundi? Já, eigum svoleiðis… og svo mætti lengi telja… Hvað er EKKI til þarna? Maður spyr sig.
Verslunin 313.web.is er draumur ævintýramanneskjunnar sem elskar allt þetta yfirnáttúrulega, Harry Potter, Hobbitan og félaga. Höfrunga, einhyrninga, drauga og kettlinga. Og hákarla.
Ég á enn eftir að kaupa mér eitthvað í 313 en hef smá augastað á 3 Wolf Moon ladies dress, aðallega vegna kostulegra umsagna á Amazon.com við bol með samskonar mynd.
Þar segja menn magnaðar sögur af því hvernig flóknustu vandamál lífsins fóru að leysast um leið og viðkomandi var kominn í þriggja úlfa bol. Fólk kemst á séns, eignast meiri peninga, grennist, já — magnaðir hlutir fara í gang um leið og maður er kominn í þriggja úlfa bol. Sumir lenda þó í vanda eins og þessi kona sem segir bolinn hafa skemmt hjónaband sitt:
„From almost the very moment my sweet, lovable, but rather ordinary middle-aged husband donned this Tshirt, he began to change, and to more closely resemble a hot twenty five year old stud. At first, I was thrilled! Not only did he look and act younger and sexier, but his prowess and stamina were immediately increased by an order of magnitude.”
Lestu allt um þennan magnaða bol HÉR á Amazon en skrollaðu aðeins niður til að lesa umsagnirnar.
Það er spurning hvað gerist ef maður beinir öllum fataviðskiptum sínum að 313? Ef maður dressar alla fjölskylduna upp í ævintýralegum fötum úr þessari fyndnu búð. Kannski er þetta stór áhætta? Aldrei að vita. Ég reikna að minnsta kosti með að tilveran nái áður óþekktum stigum af framandi hressleika.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.