Stephen Fry er ekki mikið fyrir trúarbrögð og hefur alls ekki farið leynt með það á sínum ferli.
Satt að segja er hann svarin trúleysingi þannig að það hefði verið betra fyrir Gay Byrne, þáttastjórnandann hérna, að kynna sér aðeins skoðanir Stevens áður en hann lét vaða í að spyrja okkar ástkæra Fry út í himnaríki í þættinum Meaning of life.
Það stendur sannarlega ekki á svarinu hjá okkar manni. Hann svarar svo skýrt og skýrmerkilega að sá gamli bara sýpur hveljur.
Ætli það megi ekki kalla þetta “að taka hárblásarann” á karlinn. Svona kurteisan hárblásara. Svipurinn á Gay er algjörlega præsless. Og svarið hjá Fry er auðvitað algjör snilld.
[youtube width=”700″ height=”525″]https://www.youtube.com/watch?v=-suvkwNYSQo[/youtube][heimild: gaystarnews.com]
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.