Góðar stúlkur fara til himna segir einhversstaðar, en ef þú ert mjööög slæm – þá gætirðu mögulega endað skoppandi þarna?
Eftir að hafa horft á þessi ósköp held ég að hér sé komin ný útgáfa af staðnum sem fólk fer á ef það hegðar sér ekki vel í þessu lífi.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=PzP1XC51kro[/youtube]
Í raun held ég að þetta sé versta kynningarmyndband sögunnar en hér er verið að reyna að laða okkur á dansiball í klúbbi að nafni Bounce by the Ounce í bænum Preston á Englandi.
Ertu spennt? Eigum við að skell’okkur?
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.