Well well… já það er víst hægt að taka sér hlé frá bloggi í um tja.. hálft ár og svo detta inn aftur og þá er þetta helsta lið sem eru standardar ennþá við sama heygarðshornið.
Lindsay er í New York þessa dagana að “jafna” sig eftir að hafa verið laus úr fangelsi í heila 2 mánuði. En hún má nottlega ekki drekka neitt enda búin að vera inn og út úr meðferðum síðustu 3-5 ár.
Hún sá það nú samt ekki sem ástæðu til að stoppa sig af og bar-hoppaði milli fjölda klúbba fyrir síðustu helgi. Hún notaði gamla trikkið að vera með Red bull dós og vatnsflösku til að sýna papparözzunum hversu “edrú” hún er en hún sver upp á allt og alla að hún sé ekki að drekka og hún sé bara að hitta vini sína eins og allir aðrir sem eru 23 ára!
Já ég vona það svo sannarlega að allt fari nú að lagast hjá henni og ég er nú hissa á því að hún hafi mátt ferðast frá Californiu fylki til New York þrátt fyrir að standa í málferlum út af stolnu hálsmeni.
En við óskum henni bara alls hins besta!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.