Þann 18 og 19 nóvember heldur veitingastaðurinn Sushisamba upp á tveggja ára afmælið sitt með skemmtilegu afmælispartýi fyrir alla sína góðu gesti.
Þeir munu bjóða upp á fullt af skemmtiatriðum en stuðboltinn Pacas verður veislustjóri og Logi Pedro úr Retro Stefson mun sjá um stemninguna. Matreiðslumenn Sushisamba eru búnir að setja saman afmælismatseðil með 10 vinsælustu réttum staðarins sem allir verða á 590kr ásamt tilboðum á barnum! Nú þegar er orðið þétt bókað og því nauðsynlegt að tryggja sér borð í tíma ef þig langar í almenninlegt sushidjamm!
Veitingahúsið Sushisamba opnaði í nóvember árið 2011 og hefur síðan verið einn vinsælasti veitingastaður borgarinnar. Matseðillinn einkennist af fersku bragði og litríkum réttum þar sem jalapeno, mangó og lárperur er mikið notað í réttunum. Sushisamba býður upp á magnaða blöndu japanskar og suður-amerískar matargerðar í bland við
íslensk hráefni. Það umtalaðasta og vinsælasta á Sushisamba er sushi-ið, svo kallað New-Style sushi, eða Djúsí Sushi eins og það er kallað á Sushisamba.
Matreiðslumenn Sushisamba eru búnir að setja saman afmælismatseðil með 10 vinsælustu réttum staðarins sem allir verða á 590 kr ásamt tilboðum á barnum
En það er ekki bara maturinn sem hefur slegið í gegn á staðnum heldur er hann einnig einn besti kokteilbar landsins. Vínseðillinn býður upp á um 40 kokteila sem búnir eru til af barþjónum staðarins. Vel þjálfaðir barþjónar hrista þessa vinsælu kokteila í tuga tali öll kvöld vikunar en stundum mætti halda að það væri laugardagur öll kvöld á Sushisamba!
Vinsælasti drykkurinn er án efa Mojito en þó nokkrar bragðtegundir eru í boði. Sá allra vinsælasti er Chili Mojito og einnig er mikið úrval af Caipirinha, þjóðardrykki Brasilíu.
Glæsilegir kokteilar staðarins eru stútfullir af ferskum ávöxtum í anda stemningarinnar en andrúmsloftið á Sushisamba er ótrúlega skemmtilegt og fjörugt svo við mælum með því að þú skellir þér í afmælispartý!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.