Þegar ég byrjaði að taka ljósmyndir hélt ég að það yrði alveg hrikalega erfitt að læra á photoshop/lightroom og þorði því ekki að nota þessi forrit.
Þess í stað vann ég þær alltaf í símanum mínum í forriti sem heitir Aviary. Ég sendi þær semsagt úr tölvunni með bluetooth í símann minn og vann þær þar – og sendi svo aftur í tölvuna.
Svo þorði ég aldrei að segja fólki hvernig ég vann myndirnar því ég skammaðist mín fyrir að nota bara eitthvað app og reyndi þessvegna að komast hjá því að svara áhugasömum. Frekar klikkað kerfi hjá mér ef kerfi skyldi kalla.
Þessi mynd hér að neðan er tekin á professional myndavél en ég vann hana í Aviary. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af svarthvíta litnum sem hægt er að kalla fram þar.
Sem betur fer vinn ég ekki myndirnar mínar í símanum lengur heldur nota ég tölvuna til þess og spara mér töluverðann tíma með því að þurfa ekki að senda myndirnar endalaust fram og til baka.
En ástæðan fyrir því að ég er að segja frá þessu leyndarmáli hér á Pjattinu er að mig langar til þess að mæla með Aviary! Þetta forrit er algjör snilld til þess að vinna (farsíma) myndir og það besta er að það er FRÍTT. Ég tók þessa mynd hérna að neðan í gær og vann hana svo á mjög stuttum tíma í Aviary, ég gerði hana bjartari, litina skarpari og bætti við smá þoku.
Forritið býður upp á ótal marga möguleika en svo er hægt að kaupa allskonar tilbúna “filtera”, límmiða, ramma osfrv. í viðbót við þá sem eru ókeypis. Einnig er hægt að fjarlægja bólur og annað óæskilegt sem fólk vill ekki að sjáist á mynd.
Ég mæli eindregið með að þið kíkið á þetta forrit. You wont regret it! Þú finnur það HÉR.
Svo læt ég fylgja með nokkrar haustmyndir í tilefni þess að október er genginn í garð. Allar unnar í Aviary. Þangað til næst…. x
Stjórnmálafræðingurinn Emilía Kristín er 25 ára stelpa, fædd og uppalin á Seltjarnarnesi. Hún er í sambúð og móðir tveggja dásamlegra stelpna. Emilía hefur brennandi áhuga á ljósmyndun, hönnun, tísku og barnatísku og elskar allt sem glitrar. Hún er með útlandasýki á háu stigi og er helst með 2-3 utanlandsferðir í kortunum. Uppáhalds staðurinn hennar í Reykjavík er Te&kaffi í Austurstræti og hún elskar Pippó! ✌