Ég rakst á þennan myndaþátt á netinu um daginn og varð gjörsamlega ástfangin!
Man ekki hvenær ég sá jafn flottan myndaþátt. Held ég sé búin að fara þrisvar eða fjórum sinnum aftur að skoða hann. Ég elska allt við hann! Módelið, make-upið, HÁRIÐ, stíliseringuna, myndvinnsluna. Fullkomið!
Ljósmyndarinn heitir Lina Tesch og er aðeins tuttugu ára gömul. Hún er mikið að taka myndir og allar rosa flottar. Alltaf gaman að uppgvöta nýja talenta.
Stílistinn úr myndatökunni er alveg frábær líka , hún heitir Nadja Mara Brvar. Stíllinn hennar er mjög spes en ekkert smá flottur!
Bloggið hennar Linu HÉR
Bloggið hennar Nadja HÉR
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.