Ekki veit ég afhverju ég er ekki löngu búin að skrifa um David LaChapelle. Hann er lang uppáhalds ljósmyndarinn minn
Myndirnar hans eru algjört augnkonfekt og hafa svo sérstakan blæ. Maður þekkir alltaf myndirnar hans Davids frá öðrum en það segir til um hversu góður hann er. Litagleði og klikkun einkenna myndirnar. Þær eru alltaf mjög ólíkar öllu öðru og þessvegna er alltaf gaman að sjá nýtt efni frá þessum snilling!
Hann hefur myndað margar stórstjörnur t.d. Lady Gaga,Paris Hilton, Marilyn Manson, Angelinu Jolie, Lil Kim, Eminem og fleiri.
Sjáðu…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.