Terry Richardson er mjög þekktur ljósmyndari og hefur tekið myndir af öllum frægustu módelum, leikurum og tónlistarfólki nútímans.
Terry tekur oft ögrandi myndir og er ekki hræddur við að fara eigin leiðir í þeim málum. Ég elska stílinn hans og er mikill aðdáandi.
Hann tekur líka skemmtilegar “behind the sceenes” myndir. Terry er þekktur fyrir stór gleraugu og tvo þumla upp. Hann á það til að fá fræga fólkið til að smella á sig gleraugunum og fara í líki hans.
Hann hefur m.a fengið Justin Bieber, Lady Gaga og Kate Moss til að “vera Terry” á mynd.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.