Það elska allir að eiga og skoða fallegar myndir. Emma Case er ljósmyndari sem ég hef mjög gaman af, enda með mjög næmt auga fyrir myndefninu og hún tekur einstaklega ferskar og skemmtilegar myndir af brúðkaupum.
Myndirnar hennar eru fullar af fjöri og nær hún að brjótast út úr “norminu” og fanga skemmtilegu mómentin sem svo oft verða í brúðkaupum.
[vimeo]http://vimeo.com/13613666 [/vimeo]Smelltu á myndirnar til að skoða betur
Meira um Emmu og myndirnar hennar HÉR.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.