Ég rakst á þennan sumarlega og rómantíska myndaþátt um daginn. Það var Edit Ómarsdóttir sem tók myndirnar en hún útskrifaðist nýlega úr Fashion Academy…
…Stílesering var í höndum Hrefnu Dan en Marie Ann Butler farðaði. Þessi fallegi myndaþáttur minnir mann óneitanlega á hvað íslensk sumur geta verið skemmtileg. Myndirnar voru teknar í Paradísarlaut í Borgarfirði.
Fyrirsætur: Kim Klara, Ragnheiður og María Björk.
Bjútífúl!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.