Þessi fallegi myndaþáttur birtist nýlega í LOVE-magazine. Það var ljósmyndarateymið Mert & Marcus sem smelltu þessum myndum af nokkrum flottustu módelum heims, nánast ómáluðum með tár lekandi niður kinnarnar.
Myndaþátturinn heitir Super Natural en hann er frekar dulafullur, troðfullur af frábærlega skrítnum höfuðfötum og trúarlegum táknum.
Smelltu á myndirnar fyrir neðan til að sjá þær stærri:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.