BÖRN & HEIMILI: Það er alltaf gaman að sjá falleg barnaherbergi og ég fæ hálfgert nostalgíukast þegar ég sé fallega skreytt barnaherbergi með gömlum leikföngum, lömpum eða húsgögnum frá pabba og mömmu.
Hér eru nokkur falleg barnaherbergi þar sem gömlum og nýjum hlutum er blandað skemmtilega saman svo úr verða litrík og lífleg barnaherbergi.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.