Við Díana fórum í bæinn á Gay Pride og skiptumst á að taka myndir af sætu fólki í hýru og góðu skapi.
Við römbuðum á þessa fínu unglinga og ég smellti af enda ekki annað hægt. Sætu stelpurnar úr Hafnarfirði þær Hugrún og Heiðbrá, voru jafn litríkar og regnbogalitirnir sem voru allsráðandi þennan dag og aðrir voru með kúlið á hreinu.
Díana tók saman myndatexta um hvað prýðir litlu töffarana en undirrituð tók þessar (á myndavélina hennar Díönu):
Smelltu til að stækka
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.