Lindsay Wixon er 16 ára gömul stúlka sem hefur verið áberandi í módelheiminum uppá síðkastið.
Hún er með afskaplega spes en þó mjög fallegt andlit. Gríðarlega stórar og fallegar varir. Pétursspor og frekjuskarð er það sem einkennir fyrirsætuna hvað mest.
Mér finnst hún vera svolítið blanda af Angelinu Jolie, Drew Barrymore og Löru Stone. Ekki slæmt það!
Lindsay gerði garðinn fyrst frægan eftir auglýsingarherferð fyrir Miu Miu og hefur í kjölfarið unnið hjá merkjum eins og Missoni, Victoria Beckham, Tommy Hilfiger, Louis Vuitton og fleiri.
Í frítíma sínum finnst henni skemmtilegast að lesa og skrifa. Sextán ára stúlka með vit í kollinum!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.