Útgáfufyrirtækið Harper Collins hefur boðið Lindsay Lohan milljón dollara fyrir dagbók sem hún hélt á meðan hún var í meðferð í fyrra.
Harper Collins hefur ekki gefið út neina formlega tilkynningu en upplýsingafulltrúi Lohan staðfestir að viðræður um útgáfu dagbókarinnar hafa átt sér stað en að ekkert hafi verið ákveðið.
Lindsay er greinilega vinsæl þessa dagana en á morgun verður fyrsti heimildarþáttur af 8 um vegferð hennar í átt að heilbrigðari líferni og endurkomu í Hollywood frumsýndur á OWN (Oprah Winfrey Network).
Eins og sjá má er Lindsay líka mjög hrifin af stóru O (The big O) því hún sagði hana algjörlega með sér í anda þegar hún og Jimmi Kimmel fóru í skvettuleik í vikunni.
Greinilega hafði hún rétt fyrir sér um kraft Opruh því hún gersamlega rennbleytti Jimmi greyið eins og sjá má HÉR.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.