Lindsay Lohan hefur verið mikið í slúðurfréttunum vegna sambands hennar við Sam Ronson en þær voru á föstu þar til upp úr slitnaði fyrir nokkru með miklu drama og alles.
Lindsay pósar hér í tímaritinu MUSE og stelpan er greinilega ekki að fela neitt…
Hugmyndin bakvið myndirnar er byggð á sambandi Johnny Depp og Kate Moss sem þau áttu í fyrir um 14 árum og voru þá daglega á síðum slúðurtímarita.
Ljósmyndarinn á bak við vélina heitir Yu Tsai og túlkar sambandið á þennan hátt: Truflaðir tímar, trekantur og T’nA á Lindsay.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.