Ef Lindsay Lohan er alvara með það að bjarga ferlinum er fyrsta skrefið að hætta neyslu ólöglegra lyfja. Samkvæmt heimildarmanni nánum leikkonunni notar hún ennþá alsælu og „Molly“.
Lohan er nýkomin úr enn einni meðferðinni, þeirri sjöttu, en á erfitt með að losa sig við fíknina.
„Lindsay djammar ennþá feitt. Henni þykir ekki leiðinlegt að fá sér í glas og nota eiturlyf,“ sagði heimildarmaður. „Þessa dagana notar hún mikið af alsælu og „Molly“.“
Annar heimildarmaður sagðist hafa orðið vitni að því þegar hann sá leikkonuna rúllandi drukkna á Coachella tónlistarhátíðinni í síðasta mánuði.
„Ég sá Lindsay rúllandi drukkna þegar við vorum á Coachella,“ sagði heimildarmaður. „Hún reynir ekki að fela neitt og allir sem eru nánir henni vita það að hún er notar ennþá eiturlyf.“
„Hún á aldrei eftir að losna við þessi eiturlyf sem hún er að nota. Hún á aldrei eftir að losna við fíknina.”
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.