Lindsay Lohan ætlar að missa 10 kíló á næstu tuttugu dögum ef marka má nýjustu slúðurfréttirnar frá Hollywood.
Daman ætlar sér að fasta á sítrónuvatni og te í þennan tíma og vonast til að ná af sér heilum 10 kílóum en ekki er langt síðan hún lauk 90 daga áfengis og vímuefnameðferð sem henni hafði verið skipað í af yfirvöldum í Los Angeles.
Megrunin sem Lindsay stefnir á að prófa kallast Master Cleanse og hefur notið einhverra vinsælda þar vestra en margir eru hinsvegar óhressir með þetta enda ákaflega ýktar aðferðir og ekki líklegt að árangurinn endist enda gengur þetta út á að drekka bara te og vatn með sítrónu eða lime, cayenna pipar og sírópi í ansi marga daga.
Tilgangur Lindsay með að megra sig svo mikið ku vera að líta vel út í sjónvarpsþættinum Saturday night life en hún mun gegna veigamiklu hlutverki í þættinum sem verður tekinn upp í lok mánaðarins.
Kunningi Lindsay sagði að það væru alls engin tíu kíló á líkama hennar sem hægt væri að skafa af en hún er víst með mikla komplexa yfir undirhöku (sem enginn sér heldur) og er handviss um að ef hún yrði eitthvað grennri, og losnaði við undirhökuna, þá fengi hún fleiri hlutverk.
Vinir hennar eru líka sammála um að hún sé ekki í nægilega góðu andlegu jafnvægi til að dæma sjálf um það hvort hún þurfi á slíkri megrun að halda. Þau óttast að nú geti hún misnotað mat og megranir til að skaða sjálfa sig þegar áfengið og vímuefnin eru ekki í boði lengur.
Vonum bara það besta. Það verður amk hægt að sjá hana í Saturday Night Life í lok september, þá vonandi enn brakandi edrú og í ágætis holdum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.