Lindsay Lohan stefnir á að koma sér í felur eftir að hún lýkur næstu meðferð til að auka líkurnar á að hún geti haldið sér edrú í þetta sinn.
Leikkonan unga er nú í 90 daga meðferð en hún var dæmd í hana til að geta mildað refsingu eftir að hafa verið fundið sek um að ljúga að lögreglunni. Hún laug því að hún hefði ekki bragðað áfengi en raunin var sú að daman var mjög ölvuð. Að sögn heimildarmanna slúðurpressunnar í Los Angeles óttast hún mjög að ‘detta aftur í það’ enda á hún sér mjög hrakfallalega sögu úr edrúgöngunni.
Lindsay klárar meðferð frá Cliffside centre við Malibú ströndina í Kaliforníu í næsta mánuði og hyggst flytja á einhvern afskekktan stað í Bandaríkjunum eftir að hún kemur út til að falla ekki í freistni og detta aftur í gamla lífsstílinn.
Hún ætlar hvorki að flytja aftur til Los Angeles eða New York þar sem hún var mikið selskapsljón og partýdama. Planið er að búa bara í sveitinni þar sem hún verður alveg laus við ágengni papparassa og annara forvitinna seggja.
Hvað hún ætlar svo að gera þetta lengi er ekki á hreinu en vandamenn hennar segja að hún stefni á að komast aftur að sínu sanna sjálfi. Semsagt, verða aftur hún sjálf.
Lindsay ku hafa náð ágætis tökum á sjálfri sér eins og staðan er í dag og 12 spora kerfið á að vera að virka ágætlega fyrir hana. Hún er víst dauðhrædd við að detta aftur í það enda engin leið að vita í hvað stefnir ef svo færi enda daman komin á hinn svokallaða ‘síðasta séns’ eins og sagt er.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.