Ég hef aldrei séð mynd með Lindsay Lohan en ég veit óskaplega mikið um líf þessarar ungu konu í Los Angeles. Veit t.d. að hún er misgóð í að nota brúnkukrem og fara í spray tan. Stundum hefur hún litið út eins og afkvæmi appelsínu og gulrótar en þarna er hún bara sæt og flott.
Glæsilegt líka hvernig hún bara gerir það besta úr þessu öllu, sama hversu steikt það er…og svo er hún í ógó sætum kjól. Mig langar í svona stuttan, síðerma kjól.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.