Gersamlega elska lookið og þessar myndir af söngkonunni Lily Allen sem birtust í rússneska og danska Elle.
Lily er stíliseruð af Karl Lagerfeld sjálfum fyrir forsíðu rússneska Elle og fyrir þá sem ekki vita þá er Karl Lagerfeld hönnuður fyrir Chanel en hann hefur valið Lily sem nýtt andlit Chanels og stíliserar einnig tískumyndirnar af Lily í blaðinu.
Lily er algerlega fullkomin. Flott hár, frábær klipping, förðunin er töff; smá blanda af Brigitte Bardot, Sophiu Loren og Marilyn Monroe -Lily er nútímaleg útgáfa af þessum þrem drottningum -rauðar varir, þykki eyelinerinn og svart -hvíta lookið fullkomið!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.