Lily Allen lætur sjaldan sjá sig án þess að hafa tösku frá CHANEL upp á arminn. Það hlaut því að koma að því að stelpan myndi taka það að sér að pósa með pokana.
Hér er mynd úr fyrstu sessjón og það er ekki annað hægt að segja en að þetta virðist heppnast frábærlega enda er stíliseringin æði. Takið eftir alvarlega töff leðurjakkanum (þröngar ermar mar?!) grifflunum og kórónunni (aðeins verið að vísa í Breakfast at Tiffany’s með Audrey Hepburn).
Pjattrófurnar segja JÁ við þessu!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.