Settu þetta undir ÓTRÚLEGA HALLÆRISLEGT en þó fyrst og fremst Ó NEI!
Rapparinn Lil Kim er ólétt og hefur hún beðið aðdáendur sína um að kaupa gjafir handa ófæddu barninu.
Listinn er ótrúlegur svo vægt sé til orða tekið en hún biður um hina ótrúlegustu dýru hluti eins og barnavagn, barnarúm og kommóðu, ásamt leðurbarnastól að verðmæti 100 þúsund kr!
Heyrðu já… barnakerran sem hún óskar eftir kostar „aðeins“ 800 þúsund kr!
Beiðnina fyrir gjöfunum setti hún á Instagram en hún var fljótlega tekin niður eftir að allt varð vitlaust á samfélagsvefnum vinsæla vegna þessa.
Hver ætlar þá að gefa henni barnakerruna? Þú lesandi góður?
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.