Mér finnst ótrúlega gaman að stúdera menningarkima og staðalímyndir. Nýlega fékk ég skemmtilega grein senda í pósti eftir Lauren Skirvin, penna hjá Elite Daily. Í greininni fjallar hún um fjórar neikvæðar hliðar kvenna sem flokka má sem A-týpur. En sjálf segist hún vera sú týpa.
Ég er búin að birta þrjár skuggahliðar: Heili á kókaíni, sjá hér, Áráttan, sjá hér og Sambönd, sjá hér. Nú er komið að þeirri fjórðu.
Veikleikar
Lauren Skirvin skrifar:
A-týpu kona sýnir ekki veikleika. Vinir okkar og fjölskylda hafa ekki hugmynd um það þegar við erum í uppnámi vegna þess að við tölum ekki um það. Ef og þegar við grátum gerum við það þegar enginn sér til.
Með því að fela tilfinningar okkar virkum við harðari af okkur. Þar af leiðandi sér fólk okkur gjarnan sem kaldar og ónærgætnar.
Þetta eykur einnig líkur á erfiðleikum í samböndum vegna þess að við eigum erfitt með að láta maka okkar vita hvernig okkur líður. Í stað þess að tala af ást og einlægni skýlum við okkur á bak við reiði sem gefur okkur aldrei þau viðbrögð sem við leitumst eftir.
Við ýtum fólki frá okkur vegna þess að okkur hryllir við tilhugsuninni um að þurfa að sýna tilfinningar í garð einhvers. Best væri að finna ekkert heldur en að þurfa að fela tilfinningar sínar allan lið langan daginn.
“Ég skora á allar A-týpu konur að biðja sig afsökunar. Hættið að setja svona miklar kröfur á ykkur; reynið að læra að slappa af. Lífið er of stutt til vera allaf svona stíf og áköf.” Bætir Skirvin við að lokum. “Lærið að hleypa fólki inn, sleppið takinu og gefið frá ykkur stjórnina. Þið verðið mun hamingjusamari.”
Lestu einnig um 23 merki þess að þú sért morgunmanneskja – A týpa og 11 atriði sem ríka og duglega fólkið gerir fyrir morgunmat!
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.