Ef að það er eitthvað sem fær okkur mæðurnar alltaf til að brosa þá eru það myndir af litlum börnum.
Þrátt fyrir að það séu jafnvel ekki myndir af okkar eigin börnum þá eru börn alltaf jafn yndisleg, saklaus og sæt. Þessi litlu krútt eru einfaldega dásamleg.
Ég gerðist aðdáandi Facebook síðu í fyrra hjá konu sem heitir Jade og býr í Ástralíu. Hún er ljósmyndari og tekur alveg hreint magnaðar myndir af nýfæddum börnum. Mér finnst rosalega gaman að skoða síðuna hennar annað slagið því myndirnar hennar eru meiriháttar fallegar.
Þrátt fyrir að það sé svolítið ólíklegt að við hér á Íslandi munum fara með litlu unganna okkar til Jade þá eru margir ljósmyndarar og áhugaljósmyndarar hér á Íslandi sem taka virkilega fallegar myndir af börnum. Sjálf hef ég verið nokkuð dugleg að láta taka myndir af mínum börnum og hef ég alltaf farið til stelpnanna á Art Photos og eru þær æðislegar. Ég hef einnig verið að skoða myndirnar eftir hana Stefaníu Reynis ljósmyndara og tekur hún dásamlegar myndir af litlu krílunum. Áhugaljósmyndarinn Rán Bjargar tekur einnig æðislegar myndir af börnum.
Þessi litlu gleðigjafar virðast alltaf myndast vel, sama hvaða svip þau setja upp þá eru þau alltaf dásamleg!
Bjarney Vigdís er mikil áhugamanneskja um allt sem viðkemur heilsu, uppeldi, eldamennsku, tísku, förðun, handavinnu, fegrun heimilisins og öðru pjatti. Hún er menntaður förðunarfræðingur og er jafnframt framúrskarandi húsfreyja sem heldur einnig úti sinu eigin bloggi. Hún býr á vesturlandi í litlum bæ ásamt manni sínum og 6 börnum.