Loksins er febrúar liðinn og vetrarmánuðunum fer óðum fækkandi – og ég anda léttar.
Ekki misskilja mig, veturinn getur verið hinn indælasti tími en stundum þegar ég horfi á dúnúlpuna mína þá langar mig að öskra (það kemur fyrir að ég bókstaflega öskri, heimilisfólki mínu eflaust til ama). Nú eru hinsvegar blikur á lofti og vorið má sjá gægjast fyrir hornið.
Morgnarnir eru rjómalagaðir, bjartir og bleikir þegar ég stíg út. Full af nostalgíu fálma ég eftir sólgeraugunum, dreg þau upp og þramma um með á nefninu – skrefinu nær sólríkum sumardögum og almennri sælu.
Til að stytta biðina og reyna róa niður óþolinmæði mína útbjó ég sumar-möppu með öllu því sem minnir mig á sumarið sem koma skal á síðunni Pinterest. Lesendur Pjatt.is ættu að vera orðnir ansi kunnugir Pinterest, enda griðarstaður fyrir pjattrófur, draumóra og fagurkera til að gleyma sér á.
Þetta er svipuð taktík sem ég hef skrifað um hérna þegar mér finnst lífið vera grátt og einhæft og erfitt reynist að finna drifkraftinn til að tækla vinnu- eða skólaverkefni, hundrað kíló af skítugum þvotti eða jólaseríuna sem enn hefur ekki fengið viðeigandi jarðaför. Þá læðist ég inn á síður eins og Pinterest eða Net-a-porter og læt mig dreyma og skipulegg það sem mig langar að gera.
Um leið og maður er kominn með stóra og girnilega gulrót, þá verða verkefnin og hindranirnar ekki jafn stórar og ógnvænlegar.
Ég læt fylgja með brot úr sumarmöppunni af minni af Pinterest en þar má sjá vott af Ítalíudraumum, heimsóknir frá erlendum vinum, nýjar stefnur í klæðaskápinn, girnilegt matarklám og svo lengi mætti telja. Möppuna í heild má finna svo hér.
Endilega stofnaðu aðgang, búðu til draumamöppu og fylltu hana af öllu sem þig langar að gera, fara, sjá, borða, elda og upplifa – möguleikarnir eru endalausir. Svo krossum við allar fingur og tær, förum í hvísluleik og látum það berast alla leið til sólarinnar að nærveru hennar sé óskað á Íslandi yfir næstkomandi sumartíma.
Það er aldrei að vita nema hún taki boðinu og gerist loksins sannur Íslandsvinur!!
Anna Margrét er fædd í Reykjavík árið 1987, en hefur alið manninn í Svíþjóð, Suður Ameríku og víðar.
Anna er krabbi, og þykja þeir hinir kátustu. Tíska, förðun, jafnrétti, skrif og ferðalög um Afríku eru nokkur af hennar áhugamálum.