Það virðast vera komnir brestir í sambandið hjá Miley Cyrus og Liam Hemsworth ef marka má sögusagnir vestanhafs.
Liam skellti sér einn í partý um síðastliðna helgi fyrir Óskarsverðlaunahátíðina og hann á að hafa verið afar innilegur og náinn Mad Men leikkonunni January Jones.
Liam og January sáust sitja afar þétt saman og einhverjir sjónvarvottar segja jafnvel að parið hafi verið í miklu kossaflensi megnið af kvöldinu og neistarnir hreinlega flugu á milli þeirra.
Miley hefur ekki farið leynt með ást sína á Liam í viðtölum og hefur meira að segja kallað hann “bónda” sinn í viðtölum. Hún hinsvegar mætti ein í Óskarspartý Eltons John og að sögn gesta var hún villt og tryllt á dansgólfinu og út um allt.
Við skulum vona að þessar sögusagnir séu ekki sannar því þau tvö eru svo ofboðslega krúttleg saman!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig