Pintrest er bæði skemmtilegur vefur og símaforrit fyrir okkur internetfíklana sem viljum helst vera alltaf hér í sæberspeis.
Á Pintrest getur þú safnað saman myndum af því sem veitir þér innblástur eða hjálpar þér á móta ákveðnar hugmyndir. Þannig safnaði ég t.a.m. myndum af ljósum í möppu áður en ég reið á vaðið og lét framleiða stofuljósið fyrir mig á síðasta ári. Ég safna líka myndum af mat sem hægt er að elda í bröns (ég er formaður félags brönsáhugamanna), fatnaði, húsmunum og mörgu fleiru og allt er þetta sorterað í sérstakar möppur.
Nú var Pintrest að kynna til leiks nýjan möguleika en hann er að búa til leynimöppur. Möppur sem bara þú og sá eða sú eða þau sem þú hleypir í hana geta séð.
Þú getur búið til eins margar möppur og þig langar til og fyrir hvaða tilefni sem er. Þetta er auðvitað mikið snjallræði á margan hátt, til dæmis þegar verið er að undirbúa veislur eða partý, þegar vinnustaðir skipuleggja starfsmannaferðir eða hópar vinna saman að verkefnum, þegar vinkonuhópar plotta húsmæðraorlof eða þegar þú planar eitthvað suprise, hvort sem það er stórt eða lítið.
Svo eru það gjafahugmyndir en auðvitað er bara lag að byrja strax að spá í hvaða gjafir henta hverjum þó langt sé í jólin. Allt sem sparar okkur stress er af hinu góða. Ferðalög kalla líka á skemmtileg leynisöfn á Pintrest en þú getur plottað ferðir á veitingastaði og sitthvað fleira með því að haka við Pin takkann góða.
Smelltu hér til að byrja. Þetta er afbragðs afþreying.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.