Fyrir skemmstu opnaði ný og glæsileg verslun í Mosfellsbæ. Verslunin ber nafnið LEVEL og er staðsett í Háholti 13-15 en eigandi LEVEL er Elísabet Maren Guðjónsdóttir…
Elísabet kemur frá einum af fegurri stöðum á landinu, Seyðisfirði en í versluninni selur Elísabet sína eigin hönnum ásamt ýmsum öðrum gersemum. Hér má sjá nokkrar myndir sem ég tók þegar ég heimsótti Level á dögunum.
Ég mæli eindregið með bíltúr í Mosfellsbæinn – helst við fyrsta tækifæri, að skoða þessa sætu búð og allt sem í henni fæst.
Guðrún Veiga er mannfræðingur að mennt. Týpískt naut, kann vel að meta veraldleg gæði og þrjósk með eindæmum, fagurkeri og eyðslukló.
Naglalökk eru hennar helsti veikleiki og líkamsrækt stundar hún ekki en viðheldur brennslunni með óhóflegri kaffidrykkju.