Ég var ung, vitlaus og óreynd og eins og hver önnur ung, vitlaus og óreynd stúlka á svona tímamótum þá hélt ég að ég elskaði hann. Þetta var í raun fyrsta sambandið mitt og átti ég marg eftir ólært.
Þetta stormasama samband mitt entist í hvorki meira né minna en um fjögur ár og á meðan hélt kærastinn minn fyrrverandi linnulaust framhjá mér. Mig auðvitað grunaði eitthvað og í afneitun og eins og alltaf þá er betra að trúa lygunum hans heldur að horfast í augun við raunveruleikann.
Fyrsta vísbendingin varðandi framhjáhald var þegar að ég fann allt í einu hárspennur, teygjur og klút milli veggjar og rúmdýnu hjá honum. Mér fannst þetta mjög furðulegt og þetta tilheyrði mér ekki. Ég fann þetta þegar að hann var viðstaddur og því ekki annað hægt en að spyrjast fyrir um.
Lygin sem ég fékk frá honum var að hann var að djamma með vini sínum og systir hans kom í heimsókn og skildi þetta eftir, það sem mér fannst áhugavert var að hann tók svo allt hárskrautið og henti því í ruslatunnu utandyra en skilaði því ekki til hennar.
Önnur vísbendingin var, og ég er alls ekki stolt af þessu en ég hafði mínar efasemdir, að þegar að ég var í tölvunni hans og fór að skoða history af MSN samtölum hjá honum. Þar gróf ég upp skilaboð milli hans og bróðir hans og þar var hann að monta sig við hann að hafa sofið hjá ákveðinni stelpu. Ég spyr hann út í það og þá kom lygin varðandi það að hann svaf ekki hjá henni en hann þyrfti að sýna sig fyrir bróðir sínum og því var hann að ljúga að honum varðandi það.
Þriðja vísbendingin var svo að ég fann smokka í skáp hjá honum og líka í hanskahólfinu á bílnum hans. Mér fannst það virkilega furðulegt, sérstaklega þar sem ég var á pilluni á þeim tíma. Ég spurðist fyrir og fékk þá heimskulegu lygi að hann þyrfti smokkana til þess að stunda sjálfsfróun því honum þætti sæðið úr honum svo ógeðslegt og mikið óhreinlæti í kringum það.
Fjórða vísbendingin var þegar ég ákvað að kíkja óvænt í heimsókn til hans og það situr stelpa í rúminu hans. Lygin sem ég fékk útfrá því var að hann tímdi ekki að taka leigubíl heim eftir vísindaferð sem hann var í og hún hafi óvænt verið á svæðinu og boðist til að skutla honum á bílnum hans sem hann var búinn að gera ráð fyrir að skilja eftir.
Það sem ég skildi ekki var að afhverju var hún að koma þá upp með honum.
Fimmta vísbendingin var að ég fékk aldrei að vera með honum og vinum hans. Hann sagði mér alltaf að vinir hans þoldu mig ekki og einnig að hann væri með slæma reynslu milli kærustu og vinar úr fyrra sambandi sem hann gat ekki útskýrt nánar og vildi því ekki blanda okkur saman.
Sjötta vísbendingin var svo að helgarnar í sambandinu voru verstar. Ég var oftar en ekki farin að kvíða fyrir þeim og þegar á þeim stóð þá var hann fjarlægur og ekki hægt að ná í hann. Það var auðvitað vegna þess að hann var að halda framhjá mér og ég mátti ekki komast að því.
Sjöunda vísbendingin var svo að ég ákvað að hringja í hann úr vinnuni minni eina helgina til að heyra í honum og það bergmálar alveg svakalega í kringum hann. Ég spyr hann því út í þessi bergmál og hann segist vera inn í baðherbergi því vinur hans er sofandi og hann vill ekki vekja hann, hann var vitaskuld hjá annarri stelpu sem mátti ekki vita af mér né ég af henni.
Eftir um fjögur ár í þessu leiðindar sambandi þá loksins endar það af minni hálfu og þegar átta mánuðir eru liðnir frá slitnum þá hefur kona samband við mig og segir mér alla söguna um það sem gekk á í sambandinu og þá fékk ég útskýringar á öllum skrítnu hegðunum hans ofl. Allar sögurnar tengjast framhjáhaldi því hann hélt framhjá mér nánast hverja einustu helgi í sambandinu og var með nokkur viðhöld til staðar.
Ég vil bara minna ykkur á kæru konur að vera ekki eins vitlausar og ég var á þessu tímabili og alltaf, ALLTAF treysta á innsæið ykkar. Betra er autt ból en illa skipað.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.