Kæru Pjattrófur. Bróðir minn er einstaklega myndarlegur maður, þó ég segi sjálf frá, en það hefur líka sýnt sig í allri þeirri kvenhylli sem hann hefur notið síðan hann var unglingur.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim stúlkum sem hann hefur skilið eftir í sárum og ég hef huggað á djamminu. Stundum tekur hann líka tímabil þar sem það er hreinlega ný stelpa á viku en þá verður fjölskyldan ansi þreytt á að kynnast nýrri og nýrri kærustu.
Mig grunaði fyrst að bróðir minn væri gold digger fyrir nokkrum árum þegar hann stofnaði til sambands við stelpu sem er langt í frá týpan sem hann fellur vanalega fyrir.
Þessi stelpa er mjög “venjuleg” ef að svo má að orði komast. Jarðbundin, róleg og hlédæg. Notar helst ekki farða og líður best með nefið ofan í bókum. Til að gefa ykkur mynd af andstæðunum þá myndi ég lýsa hans týpu sem líkamsræktar óðri fitness manneskju.
Þá er allt í gangi varðandi tan, augnháralengingar og hárlengingar, hollt mataræði, nýjustu tísku… þið skiljið örugglega hvert ég er að fara.
Ég var bara glöð fyrir hans hönd að prófa eitthvað nýtt. Þarna var kannski komin stelpa sem myndi endast í einhvern tíma. Ég tók hins vegar eftir því að bróðir minn var ekkert að leyna áhuga sínum á öðrum stelpum þó hann væri í þessu sambandi. Við erum náin systkini og förum gjarnan saman út á lífið og eftir eitt til tvö glös var hann oft kominn á ansi grátt svæði með öðrum stelpum.
Eftir því sem ég kynntist kærustu bróður míns betur komst ég að því að hún kom úr ansi vel stæðri fjölskyldu. Hún var námsmaður en keyrði um á flottum jeppa og bjó í nýrri íbúð. Þá tók ég líka eftir því að alltaf (og þá meina ég undantekningarlaust) þegar við fórum eitthvert út saman við þrjú – út að borða – bíó – djammið þá borgaði hún. Ég sá hann ekki í eitt skipti taka upp veskið!
Þau hættu saman eftir einhverja mánuði (minnir að það hafi verið minna en hálft ár) og við tók annar kvenmaður, kona á seinni hluta fertugsaldursins.
Bróðir minn er á milli tvítugs og tuttugu og fimm.
Jidúddamía fjaðrafokið sem varð í fjölskyldunni, – en hvað um það, ástin spyr ekki um aldur. Þetta var hins vegar allt svo óþægilegt. Hann var klárlega í einhverju bandi hjá henni og það var eitthvað svo innilega rangt við þetta samband.
Þau eru ekki saman í dag en allt frá því hann byrjaði með “venjulegu” stelpunni og í kjölfarið þessari á fertugsaldri hafa aðrar fylgt í kjölfarið sem eiga það allt sameignlegt að virðast eiga ágætlega nóg af seðlum. Ég verð að segja að ég hef dálitlar áhyggjur af því að bróðir minn sé að einhverju leyti siðblindur. Það er svo augljóst að þetta eru ástarlaus sambönd og að eitthvað annað búi að baki. Inn í jöfnunni eru framhjáhöld, lygar og ofneysla áfengis.
Kv. Áhyggjufull systir
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=6vwNcNOTVzY[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.