Leonardo DiCaprio neitaði að láta filma sig fyrir Keeping Up with the Kardashians þættina í partýi í Los Angeles.
Leikarinn var staddur í afmælisveislu vinar síns, Frankie Delgado, á XIV klúbbnum þar sem Brody Jenner var að plötusnúðast og þar voru einnig bróðir hans Brandon og faðir hans Bruce.
Tökulið fyrir raunveruleikaþættina var þarna líka og létu skipuleggjendur afmælisins DiCaprio vita vegna þess að þeir vissu að hann vildi ekki láta taka sig upp.
Heimildarmaður náinn leikaranum sagði að hann hefði beðið þangað til Jenner og tökuliðið hefðu klárað tökur áður en hann sýndi sig svo á staðnum.
The New York Post greindi einnig frá því að Paris Hilton, sem eitt sin var góð vinkona Kim Kardashian, hefði einnig neitað að láta filma sig fyrir þættina.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.