Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur verið starfandi í rúm 7 ár og fjöldi manns hefur komið á námskeið. Margir hafa sagt að námskeiðið hafi hjálpað þeim bæði persónulega og í starfi.
Ólöf Sverrisdóttir og Ólafur Guðmundsson leikarar og leiklistarkennarar stofnuðu skólann á sínum tíma en þau hafa bæði mikla reynslu af því að kenna:
„Okkur fannst hreinlega vanta svona námskeið þar sem fullorðnir fengju tækifæri til að læra leiklist og í leiðinni að þroska sig og efla sjálfstraust í gegnum skemmtilegar leiklistaræfingar.“
Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja skemmta sér, losa um hömlur og fá útrás fyrir sköpunargleðina í spuna og leik.
Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur það að markmiði að gefa fullorðnu fólki tækifæri til að kynnast leikrænni tjáningu í afslöppuðu og öruggu umhverfi. Allir hafa þörf fyrir að tjá sig og með því að efla leikræna hæfileika sína með skemmtilegum æfingum sem opna fyrir sköpunarflæði og ímyndunarafl fær fólk tækifæri til að þroska sjálfsöryggi á skapandi hátt. Námskeiðið hentar því öllum sem vilja tjá sig af öryggi hvort sem er í lífinu eða í leik. Opnar dyr eru HÉR á Facebook.
Námskeiðið er ætlað 17 ára og eldri og er í Listdansskólanum Engjateigi 1, 105 Reykjavík. Námskeiðið er á þriðjudögum 20:15 -22:15 núna í haust og er hægt að bæta við nokkrum nemendum. Hægt er að hafa samband á netfangið iceolof@hotmail.com eða í síma; 845-8858.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.