Kate Moss stendur alltaf fyrir sínu. Hún er bara sjúklega töff!
Í þetta skipti finnst mér hún hitta í mark með vor/sumarlínuna sína fyrir Top Shop 2009, sætir sumarkjólar og flottir jakkar og gollur við.
En athugið! Það er skylda að blanda saman töff og sætu í sumar. Blómakjóll er voða væminn við ljósa gollu og hælaskó en strax orðinn töff ef þú ert í leðurjakka eða grófum stígvélum við.
Og ekki skemmir fyrir ef það er kögur á jakkanum, töskunni eða skónum…
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.