Lauren Bacall er ein af mínum uppáhalds kvikmyndastjörnum. Hún var afskaplega falleg á fimmta áratuginum og er enn.
Lauren tók sín fyrstu skref í leiklistarskóla í kringum 1942 ásamt því að vinna sem fyrirsæta. Fljótt fór boltinn að rúlla og hún orðin ein helsta kvikmyndastjarna Hollywood og hefur verið þar síðan.
Lauren er fræg fyrir djúpa og sérstaka rödd eins og heyra má í myndbandinu hér fyrir neðan en alltaf finnst mér jafn gaman að horfa á gamlar svarthvítar myndir. Það er eins og allir hafi verið svo elegant og flottir í gamla daga.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.