Fagurkerar á Selfossi og í nágrenni eiga gott í vændum á laugardaginn en þá mun POP UP Verzlun gera sér ferð í bæinn og draga fram hverskonar fínerí.
PopUp er farandsverslun grasrótar tískuhönnuða á Íslandi og hefur verið starfandi síðan ágúst 2009. Verslunin hefur komið víða við síðustu tvö árin og tekið þátt í hinu ýmsu viðburðum, má þar nefna Festisvalli, Reykjavík Fashion Festival, Hugmyndahúsi Háskólanna, Menningarnótt & á Akureyri. Yfir 100 hönnuðir hafa tekið þátt á þessum tíma.
Verslunin mun nú opna dyr sínar aftur og að þessu sinni á fjölskyldu & bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi næstkomandi Laugardag, opnunartími markaðarins verður á milli 12 & 17 að Austurgötu 2a/2b en þar munu hönnuðir, ættaðir bæði af Selfossi og víðar, prýða plássið með tískufötum & fylgihlutum fyrir alla aldurshópa.
Hönnuðir sem taka þátt í markaðinum að þessu sinni eru: SKUGGA DONNA, SVAVA HALLDÓRS, ELVA, BEROMA, BABY K, IBA-THE INDIAN IN ME, HÚNIHÚN, EIGHT OF HEARTS og HELLICOPTER
PopUp býður gesti hátíðarinnar velkomna og vonast eftir að sjá sem flesta!
Viðburður PopUp – Sumar á Selfossi á Facebook.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.