Eiginmaður Khloe Kardashian, Lamar Odom, hefur átt stórt leyndarmál í langan tíma en kappinn á við mikinn eiturlyfjavanda að stríða og er kominn á botninn ef marka má slúðurmiðla vestanhafs.
Faðir Lamars er fyrrverandi fíkill og Lamar hefur oft talað opinberlega um hans fíkn og hvernig hann vilji ekki enda eins og faðir sinn. Lamar spilaði á sínum tíma með körfuboltaliðinu Los Angeles Lakers og stóð sig vel þar en var látinn taka pokann sinn og hefur ekki fundið sig í körfuboltanum síðan þrátt fyrir að hafa spilað með Dallas Cowboys og Los Angeles Clippers.
Í sumar kom í ljós að Lamar hefur verið að taka inn ‘krakk’ og hjónaband hans og Khloe stendur á brauðfótum. Khloe er búin að henda honum út úr villunni þeirra, hún hefur ekki hugmynd um hvað hann er að gera dags daglega en í sumar hélt hann svo svakalegt krakkpartý í íbúð sem hann á í Los Angeles að hann var farinn að sjá ofsjónir og kenna fólki um hluti sem það gerði ekki.
Khloe greyið er algjörlega miður sín. Twitter tístin hennar verða sífellt neikvæðari og hún reynir að setja upp grímu þegar hún fer út úr húsi en lét þó hafa eftir sér í sumar að hún væri ekki úr stáli. Lamar var handtekinn fyrir stuttu fyrir að keyra undir áhrifum, var leystur út af eiturlyfjasalanum sínum, fór síðan í meðferð en stakk af úr henni og síðast þegar einhver vissi um ferðir hans var hann staddur í djamm íbúðinni sinni í Los Angeles.
Momagerinn sjálf Kris Jenner er gersamlega æf út af þessu og segir að hann sé að sverta Kardashian nafnið/vörumerkið og vill að Khloe komi sér strax úr þessu hjónabandi. Hjónakornin hafa einnig reynt frá því að þau giftu sig að verða ólétt en ekkert hefur gengið í þeim efnum á meðan að systur Khloe hafa báðar orðið óléttar á þeim tíma en Khloe líður afar illa vegna þessa.
Khloe vill að sögn vina og vandamanna gera allt sem í hennar valdi stendur til að bjarga hjónabandinu sínu og koma eiginmanninum úr klóm fíknarinnar. Hún reynir allt sem hún getur til að gera það en hún og Lamar giftu sig árið 2009 eftir að hafa þekkst aðeins í mánuð.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig