Við ákváðum að prófa eitthvað aðeins nýtt hráefni í lakkrístoppana í ár og settum súkkulaðið frá Nóa Siríus með, þetta sem inniheldur saltkaramellu.
Þetta hljómar ekki bara vel heldur smakkast þetta rosalega vel. Lakkrístoppar eru algjörlega ómótstæðilegt jólasælgæti og svona eru þeir aðeins öðruvísi og alveg dásamlega góðir.
Innihald:
- 1. 3 egg
- 2. 200 gr sykur eða púðursykur
- 3. 150 gr Nóa rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti.
- 4. 150 gr lakkrískurl
Aðferð:
- 1. Stífþeytið eggjahvítur og bætið sykrinum rólega saman við og stífþeytið.
- 2. Saxið súkkulaðið niður og setjið það saman við blönduna ásamt lakkrískurlinu.
- 3. Setjið með teskeið á bökunarplötu og bakið við 160 gráður í 15.mín.