Fyrir ykkur sem haldið að lærastígvélin séu bara fyrir portkonur þá er hér myndband af einni mestu pæju í heimi íklæddri slíkum stígvélum.
Einu sinni voru líka korselettin talin heldur portkonuleg en svo mætti Madonna í einu slíku, hönnuðu af Jean Paul Gaultier og allt snerist við.
Fyrir utan þetta þá eru Pjattrófur aldrei hræddar við eigin kynþokka, þetta er allt bara spurning um framsetningu.
Þú getur meira að segja farið á ball og látið sokkaböndin sjást, svo framarlega sem þú sýnir þau eins og dama myndi gera… en ekki d..sla.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.