Það var ljósmyndarateymið Mert and Marcus sem gaf okkur fyrsta sýnishorn úr auglýsingaherferð Versace fyrir vor/sumar línu ársins 2014.
Mert og Marcus birtu eina mynd út herferðinni á laugardaginn á Instagram síðu sinni en það er engin önnur en Lady Gaga sem er andlit herferðarinnar. Myndin sýnir Lady Gaga klædda í glæsilegan fjólubláan kjól og bera áberandi skart um hálsinn.
Gaga minnir óneitanlega á Donatellu Versace sjálfa á myndinni þar sem hún skartar löngu aflituðu hári og sólbrúnni húð.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.