Lady Gaga tjáði sig nýlega um brösótt einkalíf sitt. Þar sagðist hún aldrei hafa fundið sanna hamingju með karlmanni:
Hún hefur undanfarið verið bendluð við leikarann Taylor Kinney sem leikur í Vampire Diaries en segist þó ekki beint finna gleðina:
“Mér hefur aldrei fundist ég innilega metin af ástmanni. Ég hef hingað til ekki getað fundið fyrir hamingjunni með karlmanni.”
Hún segist hafa mikil áhrif á karlmenn (og fólk) þegar hún er að byrja að kynnast því en eftir stuttan tíma byrji þeir að hata hana. Með þessu er hún hugsanlega að tala undir rós um Luc Carl sem hún hefur átt í on off sambandi við í um sjö ár.
Í öðru viðtali svaraði Lady Gaga að fullnægingar og spínat væru galdurinn á bak við góða húð hennar:
“Fullnægingar, fullt af fullnægingum. Fullnægingar og spínat. Nei, ég meina… ég er dugleg að vinna og svitna,” gantaðist lafðin.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.