Leikarinn Taylor Kinney opnaði sig alveg í nýlegu viðtali við Chicago Tribune en þar talaði hann meðal annars um trúlofunina við Lady Gaga.
Parið trúlofaðist á Valentínusardag og hann segir þetta hafa verið einstaklega fallegan dag. „Það snjóaði og allt var svo fallegt,” sagði hann. „Ég bara vissi að þetta var rétt, það var alls ekki eins og það hefði allt í einu kviknað á einhverri peru.”
Spurður út í sjálft brúðkaupið segist hann ekki vera kominn með fötin á hreint. „Ég fæ einhvern til að hjálpa mér með sérsniðin jakkaföt sem fara mér vel og líta vel út en ég er ekki að fara að gera það alveg einn,” segir hann.
Enn hefur ekkert heyrst um hverju stjarnan ætlar að klæðast þegar stóri dagurinn rennur upp en hún var flott á Met Gala hátíðinni í fyrradag þar sem hún klæddist kjól frá Alexander Wang vini sínum.
Gaga og Kinney hittust fyrst fyrir fjórum árum þegar hann vann að myndbandi hennar við lagið You and I.
„Ég bara sé mig ekki fyrir mér með neinum öðrum en honum sem ég er með í dag,” sagði hún í viðtali hjá Howard Stern í desember. „Hann er sá rétti. Ég finn það á mér. Ég bara veit það.”
Sjáðu fleiri stjörnur af Met Gala hátíðinni hér.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.