Söngkonan Lady Gaga hefur verið í hvíld síðasta hálfa árið eða svo til þess að jafna sig eftir mjaðmaaðgerð.
Söngkonan segir að hú hafi haldið alvarleika meiðslanna leyndum þangað til núna en hún er á góðum batavegi eftir að hafa hlýtt fyrirmælum lækna og verið róleg. Gaga var í raun og veru mjaðmabrotin en ekki bara slitin eins og hún hafði áður sagt frá. Brotið var það alvarlegt að læknirinn hennar sagði að ef hún hefði haldið eina tónleika í viðbót þá hefði þurft að setja nýja mjöðm í hana sem er háalvarlegt fyrir svo unga manneskju sem er jafn aktív og Lady Gaga.
Fyrir aðgerðina fór hún í fjöldan allan af myndatökum og þá kom brotið í ljós en brotið var það alvarlegt að það var komin hola í mjöðmina og brjóskið hékk bara út úr mjöðminni að innan, hún hafði einnig slitið liðbönd í mjöðminni.
Gaga var á hátindi feril síns þegar þetta kom í ljós og að hennar sögn hefur hún algjörlega endurnýjað sjálfa sig. Hún byrjaði á auðum striga og er mjög spennt fyrir því að fá að koma fram aftur með nýtt efni og ýmsar nýjungar.
Sem sérlegur aðdáandi Lady Gaga bíð ég spennt eftir nýju efni frá Lady Gaga og veit að hún kemur ennþá flottari til baka.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig