Söngkonan Lady Gaga er enn að jafna sig eftir mjaðmaaðgerð sem daman þurfti að fara í vegna þrálátra meiðsla í mjöðmum.
Læknar hafa sagt henni að taka því rólega fram í september og hafa ítrekað við hana að fara varlega til þess að allt grói rétt. Fyrir ekki svo löngu síðan var söngkonan flutt á milli staða í hjólastól og var þá í flatbotna skóm -sem er by the way sjaldséð sjón!
Vegna aðgerðarinnar þurfti Gaga að fresta tónleikaferð sinni en hún er gersamlega miður sín yfir þessu öllu saman og með svo margar hugmyndir í kollinum að hún er hreinlega að springa! Gaga var búin að finna til í mjöðmunum í nokkuð langan tíma en ákvað að gera ekkert í því til þess að bregðast ekki aðdáendum sínum og harkaði af sér í gegnum sársaukan, er það ekki of mikið?
Þegar sást til Lady Gaga nýlega var hún í ansi háum skóm og studdi sig við nærliggjandi súlu en það var eins og hún væri eitthvað óörugg með sig þegar hún gekk, kannski fann hún líka bara til!!
Við skulum vona að söngkonan fari eftir ráðum læknanna og taki því rólega en ég bíð spennt eftir að sjá nýtt efni frá henni!1313
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig