Hún Lady okkar Gaga er heldur betur komin til baka með hvelli, hún var með svakalegt opnunaratriði á VMA verðlaununum um helgina og nýja lagið hennar Applause er að skríða upp vinsældarlistana.
Gaga er sem stendur í London og Lafðin ferðast sko með stæl það er óhætt að segja það! Á meðan við hinar reynum að klæða okkur í föt sem eru nógu þægileg til að fljúga þá fer Gaga sínar eigin leiðir og mætir á brjóstahaldaranum!
Daman var í blúndubrjóstahaldara sem sýndi nánast nibburnar, í samfesting sem var eiginlega bara smekkbuxur og ekki nóg með það heldur var samfestingurinn gegnsær og hún var að sjálfsögðu í háum svörtum skóm til að setja punktinn yfir i-ð á þessu dressi. Hárkollan var einnig á sínum stað og sólgleraugun, það má ekki gleyma þeim!
Hvað finnst þér? Er Lady Gaga að ganga of langt með útlitið til að fá athygli þessa dagana eða er þetta bara hún og hennar stíll? Go, go Gaga eða “nó gó” segir Bó?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig