Já gott fólk ég segi það einu sinni enn og á eftir að segja það aftur Lady Gaga er komin aftur með hvelli og ætlar að láta fólk taka eftir sér enn á ný!
Söngkonan kom fram á iTunes hátíðinni í London um daginn en á leið í hljóðprufu ákvað Gaga að skella músaeyrum á kollinn og athuga hvort að Mikki Mús myndi ekki mæta á svæðið og gefa henni eitt gott knús.
Múnderingunni lauk ekki þar heldur var hún í samfesting með ‘kokka’ mynstri, með kringlótt gleraugu, virtist vera í korsiletti/samfellu innanundir samfestingnum, með gyllt belti og að sjálfsögðu í verulega háum skóm þrátt fyrir mjaðmaskiptin.
Gaga er einnig komin með nefhring sem hún skartar við hin ýmsu tækifæri, ég veit ekki alveg með hann en þetta er Gaga, maður veit aldrei hverju hún tekur uppá næst. Hún mætti einnig kát og hress með svínsnef og svínseyru við annað tækifæri en það er nú önnur saga.
Svört hárkolla varð fyrir valinu hjá Gaga í þetta skipti og ég veit ekki alveg, því oftar sem ég sé þetta köflótta dress því hrifnari verð ég af því. Hvað finnst þér? Hot or not?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig