Söngkonan Lady Gaga hefur verið með krónískan verk í mjöðmunum í mörg ár en hefur farið leynt með það vegna aðdáenda og samstarfsfólks síns.
Lady Gaga vildi ekki valda neinum vonbrigðum og hélt alltaf ótrauð áfram á tónleikum og öðrum viðburðum þrátt fyrir það að vera sárþjáð í mjöðminni en hún hefur fundið til verkja í þeim til margra ára.
Nú er verkurinn orðinn það slæmur að Gaga getur ekki meira og hefur aflýst því sem eftir er af tónleikaferð sinni. Lady Gaga er á leiðinni í aðgerð vegna meiðslanna og hún er gersamlega miður sín yfir því að valda aðdáendum sínum vonbrigðum. Allir sem hafa keypt miða á tónleika hennar fá þá að fullu endurgreidda.
Gaga hefur verið að biðja á fullu vegna vegna meiðslanna en bænum hennar hefur ekki verið svarað og þarf hún að fara í aðgerð og mun það taka hana þó nokkurn tíma að jafna sig eftir hana. Gaga sagði á Twitter síðunni sinni:
“Vonandi grær þetta eins fljótt og unnt er, ég hata þetta, ég hata þetta svo mikið. Ég elska ykkur og afsakið”
Allir háu hælarnir sem Gaga hefur verið dugleg að ganga í hafa eflaust ekki hjálpað til við verkinn og meiðslin, vonandi verður dívan fljót að jafna sig og kemur tvíelfd til baka, með mjaðmirnar í góðu lagi.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig