Fyrir þær stelpur sem eru forfallnar í þættina “America’s Next Top Model” þá hefur hún Tyra Banks opnað sína eigin vefsíðu með tímaritið “Tyra Beauty Inside & Out” sem hægt er að lesa af vef hennar.
Á forsíðu tímaritsins setningar eins og Kiss my Fit (and still Fat) Ass -Því hún hefur jú verið gagnrýnd fyrir að hafa bætt á sig.
Já, Tyra lætur ekki slá sig út af laginu hún er “fierce” og klár kaupsýslukona og hefur halað in milljónum á veruleikaþáttum sínum sem hafa slegið í gegn um allan heim.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.